Einstaklingsráðgjöf

Rauðakrosshúsið er opið öllum og býður upp á sálrænan stuðning fyrir einstaklinga. Til staðar eru sjálfboðaliðar félagsins sem hafa mikla reynslu af því að tala við fólk sem hefur upplifað alvarlega atburði. Þessir sjálfboðaliðar geta í samvinnu við einstaklinginn skoðað og greint stöðu viðkomandi og komið með tillögur um áframhald.
 
Sérfræðingar úr áfallahjálparteymi Rauða krossins bjóða sálfræðiaðstoð og gestir geta óskað eftir viðtali. Að auki eiga einstaklingar þess kost að fá lögfræðiráðgjöf og fíkniráðgjöf sér að kostnaðarlausu.

Í Rauðakrosshúsinu hafa sjálfboðaliðar góðar upplýsingar um hvers konar úrræði eru í boði hjá hinu opinbera, ýmsum félagasamtökum og öðrum sem vinna að velferð almennings í víðum skilningi.

Prestar og djáknar hafa fasta viðveru í Rauðakrosshúsinu alla virka daga milli klukkan 15 og 16.

Ertu með góða hugmynd
Hugmynd
Hver sendir
Netfang