Sálrænn stuðningur

Sálrænn stuðningur getur hjálpað fólki að takast á við tilfinningar eftir alvarlega atburði og við erfiðar aðstæður. Fólki er bent á leiðir sem hafa reynst vel til að bæta líðan og ná fyrra jafnvægi.

Sú efnahagskreppa sem við upplifum í dag hefur valdið því að sumir hafa misst vinnuna, aðrir sparnaðinn og enn aðrir eiga í erfiðleikum með að greiða af lánum. Þá ríkir almenn óvissa um hvernig og hvenær þessu ástandi lýkur og það kemur við alla. Ef aðstæður fólks eru með þessum hætti er líklegt að þær hafi áhrif á daglegt líf og líðan þess.

Það fer eftir alvarleika atburðarins, þoli einstaklingsins og aðstæðum hverju sinni hversu mikil áhrifin verða. Því nær sem atburðurinn heggur, því meiri áhrif hefur hann á fólk. Þá geta aðstæður aðstandenda einnig haft sömu djúpstæðu áhrifin á ættingja og vini.

Viðbrögð við álagi eru mjög einstaklingsbundin. Það geta verið viðbrögð eins og lamandi kvíði og áhyggjur, framtaksleysi, vanmáttur, þreyta og svartsýni. Þessi viðbrögð eru skiljanleg og eðlileg í þessum óeðlilegu aðstæðum.

Við aðstæður sem þessar skiptir miklu máli að falla ekki út úr daglegum venjum og tengslum við annað fólk. Það þarf að halda í þær venjur sem voru fyrir atburðinn og ef um atvinnuleysi er að ræða er mikilvægt að halda sér virkum. Fólk má ekki missa sjónar af eigin styrk og getu. Það hjálpar lítið að velta of mikið fyrir sér hvernig allt saman fer að lokum því við höfum ekki hugmynd um það. Slíkar hugsanir gera fátt annað en að hræða og auka á uppnám. Betra er að huga að því hvernig viðkomandi hefur það í dag, leysa úr þeim vanda sem sýnilegur er og taka eftir því sem er þegar til staðar og er uppbyggilegt og jákvætt. 

Í Rauðakrosshúsinu er lögð megin áhersla á sálrænan stuðning og hann getur verið ýmis konar. Með því að taka þátt í því sem er í boði hlúir einstaklingurinn að sjálfum sér. Þetta getur verið m.a. með því að koma á fyrirlestra, taka þátt í umræðuhópum, taka þátt í verkefnum sem boðið verður uppá og fá viðtal hjá sjálfboðaliða, presti eða sálfræðingi.
 

Ertu með góða hugmynd
Hugmynd
Hver sendir
Netfang