Starfsfólk og sjálfboðaliðar
Starfsemi Rauðakrosshússins, líkt og stærstur hluti starfs Rauða krossins, er borin uppi af hinum fjölmörgu sjálfboðaliðum félagsins. Í Rauðakrosshúsinu eru ávallt til staðar reynslumiklir sjálfboðaliðar frá deildum Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu.
Sérþjálfaðir sjálfboðaliðar taka á móti fólki og aðstoða það við að finna úrræði við hæfi. Margir þeirra hafa langa reynslu úr Hjálparsímanum 1717. Dagleg starfsemi er í höndum sjálfboðaliða hússins, svo sem kaffihornið, krakkahornið, tölvuver og skráningar.
Starfsmenn landsskrifstofu Rauða kross Íslands hafa yfirumsjón með Rauðakrosshúsinu. Verkefnisstjóri er Gunnhildur Sveinsdóttir (gunnhildur@redcross.is), og starfsmenn þær Silja Ingólfsdóttir (silja@redcross.is) og Hildur Friðriksdóttir (hildurfr@redcross.is).
Verkefnisstjórn Rauðakrosshússins er í höndum samstarfshóps sem skipaður er starfsmönnum Rauða kross Íslands, sjálfboðaliðum og gestum hússins.
|