Starfsemi

Rauðakrosshúsið er miðstöð fyrir alla landsmenn þar sem einstaklingar og fjölskyldur geta leitað stuðnings við að takast á við breyttar aðstæður - eða nýtt krafta sína öðrum til gagns.

Allir velkomnir
Í Rauðakrosshúsinu geta einstaklingar og fjölskyldur sótt sér sálrænan stuðning og ráðgjöf um margvísleg úrræði sem bjóðast í samfélaginu. Einnig er í boði ýmis konar fræðsla og félagsstarf opið öllum. Lögð er áhersla á samvinnu, stuðning og sjálfboðna vinnu. Starf Rauðakrosshússins er byggt á áralangri reynslu félagsins af viðbrögðum í neyð.

Sjálfboðaliðar móta starfið

Fólk er hvatt til að nýta krafta sína með því að þróa og skapa sín eigin verkefni sem gjarnan nýtast öðrum í Rauðakrosshúsinu. Eins og í öllum verkefnum Rauða krossins munu sjálfboðaliðar bera starfið uppi og hafa þeir margir gífurlega reynslu sem nýtist vel í Rauðakrosshúsinu.
 

Ertu með góða hugmynd
Hugmynd
Hver sendir
Netfang